IMO innskráning
Gerð bindandi reglna um siglingar skipa á heimskautasvæðum, Polar Code.
Á vettvangi IMO er verið að ræða efni og umfang þeirra reglna sem gilda eiga um skip í förum á heimskautsvæðum. Í fyrstu umferð er ráðgert að semja reglur sem byggja á ákvæðum SOLAS samþykktarinnar og MARPOL samþykktarinnar og næðu til þeirra skipa sem falla undir ákvæði SOLAS. SOLAS samþykktin nær til farþegaskipa í millilandasiglingum og til vöruflutningaskipa í millilandasiglingum sem eru stærri en 500 brúttótonn. Á síðari stigum yrði fjallað um þær kröfur sem gera skyldi til siglinga annarra skipa, svo sem minni vöruflutningaskipa og fiskiskipa á heimskautasvæðum.
Mikil samstaða er meðal aðildarríkja Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar IMO um að setja bindandi reglur um smíði, búnað og rekstur skipa sem eru í förum á heimskautasvæðum. Það þýðir þó ekki að öll ríki séu sammála um umfang og efni þeirra reglna sem setja skuli þar um.
Samstaða virðist þó um að horfa til þriggja meginþátta við mat á þeim kröfum sem gera skuli til skipa í förum á heimskautasvæðum:
- Í fyrsta lagi kröfur sem tilefni er til að gera varðandi siglingar skipa í hafís og það álag sem myndast eða getur myndast á bol skipsins og stjórnbúnað þess við þær aðstæður.
- Í öðru lagi kröfur sem taka mið af því að skipin eru í förum á hafsvæðum þar sem aðstoð í neyðartilvikum eða björgun verður ekki komið við með neinum skjótum hætti og að hefðbundin beiting björgunartækja kann að vera ómöguleg.
- Í þriðja lagi kröfur til umhverfisþátta með því að lífríki á þessum slóðum sé miklu viðkvæmara gagnvart utanaðkomandi röskun eða áhrifum en víðast annars staðar.
Ísland tekur virkan þátt í mótun reglan um siglingar skipa á heimskautsvæðum. Hefur Siglingastofnun átt náið samstarf við fulltrúa ríkisvalds og atvinnulífs um þá stefnu sem fylgt hefur verið og þau sjónarmið sem komið hefur verið á framfæri.
Aðeins fulltrúar ríkisvalds og atvinnulífs sem koma að þessu samráði hafa aðgang að vinnuskjölum á milli funda.