Frétt

22.5.2008

Bókleg og verkleg próf á skemmtibáta

Eftir að lög nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa tóku gildi 1. janúar 2008 verða skipstjórar á skemmtibátum sem eru 6 metrar að skráningarlengd og lengri að afla sér grunnþekkingar á öryggisþáttum sem tengjast siglingum og skipstjórn og hafa gilt skipstjórnarskírteini á skemmtibát, sjá 7. gr. laganna. Nánari reglur um próf til skemmtibátaskírteinis er að finna í reglum nr. 393/2008 og um skírteinið í 17. gr. reglugerðar nr. 175/2008. Til að fá slíkt skírteini þarf viðkomandi að hafa lokið bóklegu og verklegu prófi á skemmtibát og staðist þær kröfur sem fram koma í námskrá Siglingastofnunar Íslands. Ekki er skylt að hafa lokið sérstöku námskeiði áður en prófin eru tekin.

 

Fjöltækniskóli Íslands hefur nú auglýst námskeið 7. og 8. júní og bóklegt próf 11. júní kl. 18.00 til skemmtibátaréttinda á heimasíðu sinni.

 

Snarfari, félag sportbátaeigenda í Reykjavík, hefur auglýst á heimasíðu sinni bóklegt upprifjunarnámskeið og verkleg próf í byrjun júní ef næg þátttaka fæst.

 

Siglingasamband Ísland hefur í undirbúningi að halda bóklegt og verklegt próf og verður það auglýst á næstunni á heimasíðu sambandsins www.silsport.is

 

Siglingastofnun Íslands semur bókleg próf (sýnishorn bóklegs prófs)
og skipar prófdómara bóklegra og verklegra prófa sem fer yfir úrlausnir og metur færni. Þeir sem standast bókleg og verkleg próf geta í framhaldi af þeim sótt um skemmtibátaskírteini hjá Siglingastofnun, sjá umsóknareyðublað

 

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Siglingastofnunar www.sigling.is

Hér má sjá kynningarbækling um skemmtibáta

Helstu spurningar og svör um skipstjórnarskírteini á skemmtibát.

 

Eldri fréttir:

5. maí 2008 – Útgáfa skipstjórnarskírteina á skemmtibáta

28. apríl 2008 - Nýjar reglur um próf og skírteini fyrir skipstjóra skemmtibáta

23. apríl 2007 - Ný lög um áhafnir fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.

24. nóvember 2006 – Frumvarp til laga um áhafnir íslenskra skipa

 


Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi