Samgönguáætlun

Hinn 30. apríl 2008 tóku gildi lög um samgönguáætlun nr. 33/2008. Markmið laganna er að samræma áætlanagerð við framkvæmdir og rekstur í samgöngumálum.

Í samgönguáætlun skal marka stefnu fyrir allar greinar samgangna næstu 12 árin, skilgreina grunnkerfi samgangna, gera grein fyrir ástandi og horfum í samgöngum í landinu, taka tillit til umhverfis, öryggis, þarfa ferðaþjónustunnar fyrir bættar samgöngur og taka mið af því að fjármunir ríkissjóðs nýtist sem best. Forgangsröðun skal byggjast á mati á þörf fyrir samgönguframkvæmdir í landinu í heild og í einstökum landshlutum.

Samgönguráð og samgönguþing
Samgönguráð hefur yfirumsjón með gerð samgönguáætlunar, en þar sitja flugmálastjóri, siglingamálastjóri og vegamálastjóri, auk fulltrúa ráðherra sem er formaður ráðsins. Samgönguráð á að hafa samráð við hagsmunaaðila eins og ástæða þykir til hverju sinni.

Til að veita ráðgjöf og leiðbeiningar við gerð samgönguáætlunar skal samgönguráð standa fyrir samgönguþingi, en til þess skal öllum helstu hagsmunaaðilum samgöngumála boðið. Á þinginu skal gerð grein fyrir fyrirhuguðum forsendum og markmiðum áætlunarinnar.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi