2011-2014
Þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2011-2014 var samþykkt á Alþingi 19. júní 2012. Hana er hægt að skoða hér.
Nú er samgönguáætlun fyrir tímabilið 2013-2016 í vinnslu.
Áætlunin skiptist í flugmálaáætlun, siglingamálaáætlun og vegáætlun og skal endurskoðuð á tveggja ára fresti. Í henni skal gerð grein fyrir fjáröflun og sundurliða útgjöld eftir einstökum framkvæmdum, rekstri, þjónustu og viðhaldi eftir því sem við á. Hafnar- og sveitarstjórnum hefur verið sent bréf vegna siglingamálakafla áætlunarinnar, þar sem gefinn er kostur á að senda inn óskir fyrir næsta tímabil.