Öryggi sjófarenda

Áhersla er lögð á að vinna úr niðurstöðum rannsókna á sjóslysum og kappkostað að lærdómur sem af þeim má draga skili sér inn í reglur um öryggi skipa og áhafna. Til skiparannsóknanna eru áætlaðar 15 m.kr. á ári.

Helstu verkefni eru: Vatnsþéttleiki skipa, áhættumat minni fiskiskipa í hættulegum öldum, mæling á hreyfingum skipa, nýting andveltigeyma, hleðsla og ofhleðsla smábáta og loftflæði til aðalvéla skipa.

Kannað verði hvaða áhrif hávaði hefur á hvíld og svefn skipverja. Afkastageta skipverja og einbeitni þeirra er oft háð þeirri hvíld sem þeir fá og er athugandi hvernig þreyta getur verðið orsakavaldur mannlegra mistaka sem oft orsaka slys um borð í skipum. Á grundvelli niðurstaðna verða settar fram tillögur til úrbóta. Gerðar verða samtímamælingar á hreyfingum skipa, loftgæðum og hávaða í samstarfi við áhafnir, útgerðir, hagsmunaaðila og verkfræðistofur.

Sjá nánar öryggi sjófarenda, sjóslys

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi