Umhverfi

Lögð verður sérstök áhersla á verkefni er tengjast suðurströnd Íslands og við það miðað að framlög til þessara rannsókna verði aukin um 10 m.kr. á ári en árlega er gert ráð fyrir 15 m.kr. kostnaði við umhverfisrannsóknir.

Meðal annars verður unnið að rannsóknum á sjólagi á mismunandi siglingaleiðum, landbroti og hugsanlegri nýbreytni í ferjusiglingum milli lands og Eyja. Haldið verður áfram að kvarða reiknuð sjávarföll og eru niðurstöður líkansins bornar saman við mæld sjávarföll í höfnum. Siglingastofnun mun halda áfram að þróa upplýsingakerfið um veður og sjólag.

Lagt er til að settur verði upp starfshópur Vegagerðar og Siglingastofnunar Íslands um umhverfisvæna orkugjafa. Hópurinn leggi fram stöðumatsskýrslu á tveggja ára fresti um þróun vetnis sem orkugjafa í íslenska samgöngukerfinu og fiskiskipaflotanum. Um borð í skipum er fjöldi efna sem flokkast undir spilliefni og leita ber leiða til að draga úr notkun þeirra. Hér verður lagt til verkefni sem fjalli um heildargreiningu á spilliefnum skipa.

 

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi