Slysavarnir í höfnum

Um slysavarnir í höfnum gilda reglur nr. 326/2004. Í reglunum er kveðið á um tilskilinn öryggisbúnað á hafnarsvæðum, fyrirkomulag búnaðarins og aðrar nauðsynlegar öryggisráðstafanir.

Öryggis- og björgunarbúnaður
Við hönnun og endurbætur hafnarmannvirkja skal gert ráð fyrir uppsetningu öryggisbúnaðar og mannvirki þannig hönnuð að þeim sem um hafnir fara sé sem minnst slysahætta búin. Siglingastofnun Íslands ákveður hvort nægjanlegt tillit sé tekið til ofangreindra atriða við hönnun hafnarmannvirkja og hvað teljist fullnægjandi öryggisbúnaður á hverjum stað. Hafnarstjórnir skulu sjá til þess að öryggisbúnaði í höfnum sé ætíð vel við haldið og hann nothæfur. Eftir að öryggisbúnaði hefur verið komið upp hefur Siglingastofnun Íslands á hendi eftirlit með honum.Siglingastofnun Íslands skal aðstoða hafnarstjórnir við að gera áætlanir um slysavarnir í viðkomandi höfnum.

Sjá einnig um öryggi í höfnum

Allar bryggjur skulu búnar vel færum stigum. Þeir skulu ná 1,5 m niður fyrir stórstraumsfjöruborð, vera með auðveldri uppgöngu yfir bryggjukant og málaðir með rauðgulri málningu. Á flotbryggjum skal ávallt vera einn stigi á þeim enda flotbryggju sem er fjær landi. 

Á hverju aðskildu hafnarsvæði, en þá er átt við að fjarlægð til næstu viðlegu sé meiri en 200 m mælt eftir eðlilegri gönguleið, skulu vera a.m.k. tveir bjarghringir, tveir krókstjakar a.m.k. 6 m langir og tvö björgunarnet/björgunarlykkja. Stjakarnir skulu málaðir rauðgulri endurskinsmálningu. Björgunartæki þessi skulu geymd á greinilega merktum, aðgengilegum og upplýstum stöðum.

Á hafnarsvæðum skal lýsingu þannig háttað að vinnu- og umferðaröryggi sé í hámarki. Ljósum skal þannig fyrirkomið að lýsing trufli ekki sjófarendur. Umferð um hafnarsvæði skal skipulögð þannig að sem minnst slysahætta stafi af henni fyrir þá sem þar vinna.

Á hverju hafnarsvæði á að vera a.m.k. einn bjölluskápur sem tengdur er vaktstöð, s.s. Neyðarlínu (112), slökkviliði eða lögreglur. Bjölluskápar eru aðkenndir með sérstakri merkingu og bláu leiðbeiningarljósi. Fjarlægð í bjölluskáp frá bryggjukanti má mest vera 200 m mælt eftir eðlilegri gönguleið. Við bjölluskáp skal vera blátt leiðbeiningarljós og merking líkt og á brunaboða.

Á hafnarsvæðum þar sem akfært er að sjó og fyrir verða bryggjur þar sem dýpi verður meira en 1,5 m á flóði eða brattir kantar skulu gerðir minnst 20 cm háir kantbitar. Bryggjukantar skulu málaðir að innanverðu með áberandi ljósgulum lit eða auðkenndir með gulum endurskinsmerkjum.

Allur öryggisbúnaður hafna skal merktur með samræmdum hætti. Þannig skulu bryggjukantar vera málaðir í ljósgulum lit (sítrónugult), stigar í rauðgulum lit (appelsínugult). Hindranir skulu málaðar með svörtum og gulum röndum.

Hafnarstjórn ber skylda til að sjá um að starfsmenn hennar hafi hlotið lágmarksþjálfun í notkun þeirra björgunar- og öryggistækja sem eru á hafnarsvæðinu.Hafnarstjórn skal skipuleggja innra eftirlit með öllum þáttum þessara reglna. Tíðni innra eftirlits skal vera nægilegt miðað við aðstæður og skipulagt í samráði við Siglingastofnun Íslands. Starfsmenn Siglingastofnunar skulu sannreyna virkni innra eftirlits hverrar hafnar einu sinni á ári eða oftar ef þörf þykir.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi