Stefnumótun

Hinn 1. október 2006 verða liðin 10 ár frá því Siglingastofnun tók til starfa. Með tilliti til þess og nauðsynlegrar endurnýjunar á samstarfssamningi við samgönguráðuneytið hófst árið 2003 skipuleg umræða um stöðu og framtíð stofnunarinnar.

Um mitt ár 2005 lá fyrir staðfest stefnumótun sem hér birtist. Til stuðnings henni voru einnig samþykktar áætlanir og aðgerðir á afmörkuðum sviðum, sjá

Leiðarljós
Í örugga höfn

Hlutverk

Siglingastofnun Íslands er framsækin þjónustustofnun sem skapar hagkvæmar aðstæður til siglinga og fiskveiða og vinnur að öryggi á sjó og strandsvæðum

Gildi
Samvinna, þjónusta, frumkvæði

Framtíðarsýn
Siglingastofnun Íslands mun:

  • vinna að öryggi og aukinni velferð sjófarenda
  • vinna að hagkvæmni í siglingum, sjávarútvegi og samgöngum
  • reka öflugustu upplýsinga- og leiðsöguþjónustu í N-Atlantshafi
  • starfa sem viðurkennd þekkingar- og rannsóknarmiðstöð á sviði siglinga- og hafnamála
  • veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf á sérsviðum stofnunarinnar
  • vera virkur þátttakandi í mótun heildarstefnu stjórnvalda um samgöngur, skip, hafnir, strandlengju og umhverfismál sjávar
  • vera virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi
  • Meginmarkmið
  • Að veita viðskiptavinum öfluga fyrsta flokks þjónustu
  • Hafa á að skipa ánægðu og vel menntuðu starfsliði
  • Að byggja reksturinn á góðri nýtingu fjárheimilda, öflugri áætlanagerð og eftirfylgni
  • Að innra starf stofnunarinnar sé skilvirkt
  • Stuðla að hagkvæmni í uppbyggingu og rekstri hafna, leiðsögukerfa og annarar öryggisþjónustu fyrir skip
  • Stuðla að því að lög og reglur um siglingamál tryggi sem best öryggi sjófarenda og séu  jafnan í samræmi við samfélagsþarfir
  • Að sinna eftirlitshlutverki sínu með prýði 
  • Að vinna að rannsóknum og gagnaöflun á sérsviðum stofnunarinnar
  • Tryggja að alþjóðlegar reglur taki mið af íslenskum hagsmunum
  • Veður og sjólag
    Framkvæmdir
    Öryggi sjófarenda
    Vakstöð siglinga

    Leit

    Leit
    Leturstærð
    • Minnka letur
    • Stækka letur
    • Breyta bakgrunnslit
    Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi